01.12.2006
Fagna sérstaklega "hirðisbréfi" framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar sem hann kallar "Rauða þráðinn"getur örugglega orðið okkur til halds og skapað meiri samfellu.Svo þarf fleiri útfærslur á stefnugögnum - í líkingu við Fagra Ísland; - en um leið virðist ekki vanþörf á að setja upp umræðu-seminar þar sem forystumenn sem hyggjast bera stefnuna fram efla sameiginlegan skilning á inntakinu.
01.12.2006
Í boði Samfylkingarinnar og á kostnað AkureyringaSkrýtin staða og pólitískt fáránleg. Kristján þór situr og verður forseti bæjarstjórnar - með atbeina Samfylkingarinnar.
01.12.2006
Flokksstjórnarfundur á morgun laugardag 2.des.og ég hef fengið ítrekaða áskorun um að mæta í Reykjanesbæinn. Lít á þessa stöðu sem upp er komin hér á Norðurlandi og í mínu nánasta umhverfi bæði sem ögrun og sem tækifæri til að hreyfa málin og færa til betri vegar.
01.12.2006
Fylgishrun á Norðurlandihjá Samfylkingunni. Ekki er það efnilegt. Í NA-kjördæmi fellur fylgi í nóvember í 18% frá 24% í október. Er ekki einboðið að tengja þetta 25 %-hrun við það að í byrjun nóvember lá fyrir að framgangur undirritaðs í prófkjörinu varð enginn?? -- er það ekki nokkuð ljóst!!!Ágæt þingkona Anna Kristín Gunnarsdóttir var straujuð í prófkjöri á NV-landinu.
29.11.2006
Þráseta Sjálfstæðisflokkins í menntamálaráðuneytinu er eitt stóra pólitíska málið. Samfelld seta frá 1983 - með tæplega 3ja ára hléi á meðan Svavar Gestsson sat inni - eða bráðum 21 ár af 24.
27.11.2006
Jón Sigurðsson gengur í lið með Kristni GunnarssyniÞað vakti athygli mína að um leið og Jón Sigurðsson gekk gegn stefnu og ákvörðunum fyrrverand formanns Framsóknar; - talaði um mistök og rangar ákvarðanir - þá var Kristinn Gunnarsson enn i skammarkróknum.
27.11.2006
Til hamingju Kristján ÞórNú liggur fyrir að Kristján Þór er á leiðinni úr bæjarstjórastólnum. Hann lagði talsvert mikið undir - en uppskar af skipulagðri vinnu öflugrar maskínu.
24.11.2006
Vil áfram leggja að mörkumÍ Vikudegi í gær var birt stutt viðtal við undirritaðan þar sem ég staðfesti að ég hef ekki uppi nein áform um að segja mig úr Samfylkingunni.
20.11.2006
Var í fyrsta holli Silfri Egils í gær ásamt Margréti Sverrisdóttur, Gísla Marteini og Margréti Frímannsdóttur. Egill Helgason hefur lesið minn langhund með góðri athygli - og tengir mín skrif inn á sína síðu.
16.11.2006
Akureyrarflugvöllur: Til staðfestingar á því að Sturla Böðvarsson var ekki fyrst í gær að frétta af lengingarþörf og áhuga heimamanna á að skoða flýtifjármögnun verkefnisins: