Kvíðalaust
20.01.2016
Það bægir frá manni kvíða - að vita að allt verður í föstum skorðum – líka á morgun það er ekki vitund spennandi að hafa þetta neitt öðruvísi hver sem heldur því fram er að ljúga sig kokhraustan eða réttlæta brostið hjónaband og hruninn heim eins og það hafi alltaf verið það sem stefnt var að ætluðum við ekki annars að kanna ný lönd - áður en það yrði of seint?