22.12.2012
Það hafa orðið sérkennileg tíðindi í pólitíkinni. Lilja Mósesdóttir hefur næstum yfirgefið flokkinn sem hún stofnaði utan um sig. Sama hvort það er vegna vonbrigða henna með að fá ekki meira en "fljúgandi start" - - því það var sannarlega það sem hún fékk - - glæsilegar undirtektir í skoðanakönnunum.
20.12.2012
Vinur minn sem hefur pólitískt nef fullyrti við mig í dag að komið væri upp svipað ástand í landsmálapólitíkinni eins og skapaðist í Reykjavík og á Akureyri í aðdraganda sveitarstjórnarkosninanna.
10.11.2012
Upprifjun frá fv.Samfylkingarmanni á Akureyri Eru töframennirnir eða „sjónhverfingamenn“ – að missa hæfileika sína? Þátttaka og niðurstaða sýnir að áhuginn á flokknum er enginn og virkni flokksmanna bendir til þess að afhroð flokksins sé í vændum.
22.10.2012
Sorglegur ósiður þeirra sem „harkast mest“ er að þeir víla ekki fyrir sér „að halla máli“....svo vægasta orðalag sé notað um framsetningu Herdísar í myndinni.
22.10.2012
Starfsmaður Skógræktar ríkisins sendir mér tóninn...á 641.is Þröstur Eysteinsson sér ástæðu til „að kasta að mér“ og gefur í skyn að mig skorti bæði raunsæi og þekkingu.
12.06.2012
Flokkurinn minn: bandalag um réttlæti, lýðræði og samvinnu fyrir hagsmuni almennings Tilgangur Flokksins míns er að vera farvegur fyrir almenning til að leggja að mörkum til þróunar samfélagsins.
05.03.2012
Sýkna er ekki endilega í spilunum - eftir þennan dag.Geir Haarde staðfesti í dag nokkra punkta: · Að óvissa vegna ofvaxtar bankakerfisins hefði leitt til þess að hann fyrir hönd ríkisstjórnar Íslands leitaði eftir því við ESB að Ísland fengi aðgang að samstarfi ESB-ríkjanna um fjármálastöðugleika og innistæðutryggingar strax í febrúar 2008.
23.01.2012
Síðastliðinn föstudag var logn á Pollinum - eins og svo oft á vetri. Það var grátt í himinninn en birtan var í sjávarfletinum. Meðfram fjörunni fyrir framan Leikhúsið og innfyrir Höefnersbryggjuna voru fáeinir hópar fugla.
05.01.2012
Leyfi mér að gera tillögu um það hvernig við leggjum drög að samvinnufélagi til að kaupa Pennann - opið félag fyrir allar fjölskyldur sem geta séð af þrjúþúsund krónum til allt að þremur milljónum.
03.01.2012
Bensi og Ólafur Ragnar: Þegar ég var hálfstálpaður drengur í Mývatnssveit trúði ég því að ég væri andvígur Viðreisnarstjórninni. Man reyndar eftir mér haustið 1958 líklega - - þegar eldri bróðir hafði af nýfenginni heimsmennsku ákveðið að beita sér í pólitík að ég reisti með honum frumstætt kröfuspjald sem á var letrað „strax aftur vinstri stjórn“ – en þá hafði Hermann Jónasson nýlega sagt af sér og beðist lausnar fyrir ráðuneyti sitt.