Fréttir

Þrátt fyrir allt

 Slabbið og morgungráminn gæti lagst þungt á mann, -  ef ekki væri þessi vissa: Snjórinn verður brátt á burtu rekinn,og bjarmi sólar drífur skýjafar.Og ástin verður aldrei aftur tekin, sem eiginkonu minni helguð var.

Þrátt fyrir kulda og krap

  Brugðist við aðstæðum Það er snjóhraglandi og krapahrat á jörðu.  Ekki sérlega upprifinn dagur á Akureyri.Þó dagurinn byrji með kulda og krapog hvimleiðar fréttir af háska,og þrátt fyrir vexti og voðalegt tap,- er vorið samt handan við páska.

Að elska

 Að elska er eins og að sitja við vatn á vori,með sól og dúnlétt ský á himninum.Mýktina í golunni og látbragð fuglanna fanga ég í sál minni - og færi þér. (Ort til frú Helgu - eitt vetrarkvöld - og allt af sama tilefni).

Morgunmugga - en bjartsýnn þó

 Í tilefni af morgun-muggunni (með kv-framburði Norðlendingsins) - með jákvæðum huga þó!Detta úr lofti kornin hvít, hvert eru vorský fokin? Blíðu og sól í bjarma lít, bak við augnalokin.

Lítill drengur og fugl

   (Smella til að spila hljóð) Hávellan – þessi fugl bernsku minnar,með sitt a..a..og álla  og a.a.a.aaa...Fyrstu merki vors í háfjallasveit, steggirnir sveifla stélfjöðrum,vakrir  og flögra, stinga sér undir vatnsborðið og bægja öðrum frá, af grimmd, bresta á flug og eltast – a.

Glampandi Pollinn gárar fugl

18.03.2010Hávellan er sá fugl í minningum bernskunnar úr Mývatnssveit sem er fyrsti vorboðinn; með sitt a.a.álla..Í morgun var hópur kominn á Pollinn - frábært í ládeyðunni.

Meira um stemminguna og Bensa

 17.mars 2010 Morguninn var dökkur og dimmt yfir, slydda og rigning með þokunni.    Ég fór til sjúkraþjálfarans og hann var ekkert að skafa af því; - ég fann til og beit saman tönnum þannig að ég verð líklega að fara til Bessa litla frá Skarði og biðja hann um að draga jaxlana hálfa upp aftur.

Dýrðin við Pollinn - fegurð og ást

Dýrðin við Pollinn er ótrúleg þegar lognkyrran og bjartur himinn spilar saman. Hef verið undirlagður af stemmingu og jákvæðum huga upp á síðkastið.Nota þessa aðferð markvisst til að bægja frá mér pólitísku þunglyndi og niðurdregnum hugsunum - þegar ég fylgist með afar laklegri frammistöðu ríkisstjórnar og ráðherra jafnaðarmanna og sósíalista.

Þingmannastjórn: - til að leysa stjórnarkreppu

Sé ekki að neitt bendi til þess að meirihluti hafi verið staðfestur að baki sitjandi ríkisstjórn á þeim dögum sem liðið hafa frá þjóðaratkvæðagreiðslunni.VG segist styðja stjórnina en skilyrðin flögra yfir - enda ekkert á borðinu um það að efnisleg lausn liggi fyrir á ICESAVE - eða öðrum málum.

Formannskjör sett á Dagskrá hjá Samfylkingunni

 Forystuvandi vinstri og félagshyggju – máttvana reiði almennings Nú hefur fyrsta þjóðaratkvæðagreiðslan farið fram.    Sorglegt að það skuli hafa vafið utan um sig eins og raunin varð - - með því að forystufólk ríkisstjórnarinnar fór í fýlu og brást þannig með öllu í því mikilvæga hlutverki allra ríkisstjórna að leika landsfeður og mæður.