01.12.2006
Fagna sérstaklega "hirðisbréfi" framkvæmdastjóra Samfylkingarinnar sem hann kallar "Rauða þráðinn"getur örugglega orðið okkur til halds og skapað meiri samfellu.Svo þarf fleiri útfærslur á stefnugögnum - í líkingu við Fagra Ísland; - en um leið virðist ekki vanþörf á að setja upp umræðu-seminar þar sem forystumenn sem hyggjast bera stefnuna fram efla sameiginlegan skilning á inntakinu.
01.12.2006
Í boði Samfylkingarinnar og á kostnað AkureyringaSkrýtin staða og pólitískt fáránleg. Kristján þór situr og verður forseti bæjarstjórnar - með atbeina Samfylkingarinnar.
01.12.2006
Flokksstjórnarfundur á morgun laugardag 2.des.og ég hef fengið ítrekaða áskorun um að mæta í Reykjanesbæinn. Lít á þessa stöðu sem upp er komin hér á Norðurlandi og í mínu nánasta umhverfi bæði sem ögrun og sem tækifæri til að hreyfa málin og færa til betri vegar.
01.12.2006
Fylgishrun á Norðurlandihjá Samfylkingunni. Ekki er það efnilegt. Í NA-kjördæmi fellur fylgi í nóvember í 18% frá 24% í október. Er ekki einboðið að tengja þetta 25 %-hrun við það að í byrjun nóvember lá fyrir að framgangur undirritaðs í prófkjörinu varð enginn?? -- er það ekki nokkuð ljóst!!!Ágæt þingkona Anna Kristín Gunnarsdóttir var straujuð í prófkjöri á NV-landinu.