16.09.2011
stundum finnst mér eins og ekkert gerist án þess að ég leggi þar að mörkum,, ,...og einstaka sinnum er ég alveg viss.
09.09.2011
þegar gránar í fjöll og kvöldin eru dimmrifjast upp gamall hrollur .. auðvitað á maður peysu og ullarsokkaen maður fer nú ekki í það alveg ótilneyddur. .
01.09.2011
Á heitum dögum snemma sumars voru drengir kotrosknir við stífluverk með piltum – og lögðu grunn að sprettu á flæðilandinu Eftir fyrsta slátt var svo farið á engjar leirlykt úr sundum, léttur sláttur fyrir viðvaninginn Skáraði breiðar með orfinu en hann hafði vald á .
25.08.2011
undir haust er Vaðlaheiðin virkilega græn,vorið kom jú seint; - og skafl í brúnum,og bændur dreymir enn um að lömbin verði væn,þó væru sífelld hret - og kal í túnum.
11.08.2011
..þegar ég hugsa til þess hverjir voru um sextugt þegar ég var unglingur þá dásama ég aftur og aftur hversu góða ævi ég hlýt að eiga..og þegar ég man eftir því að ég er ekki lengurbara tuttugu og fimm.
04.08.2011
Marga daga langar hann til að gera ekkert, hugsa ekkert og heyra ekkert...eða með honum vakir að minnsta kosti einhver draumur um afslappað iðjuleysi - - - Merkilegt hvað er svo sársaukafullt að geta ekki gert nokkurn skapaðan hlut, af því sem þó var á dagskrá og það dugar ekki allt heimsins parkódín forte nema rétt til að slá á líkamans kvalir .
07.07.2011
þegar morgunþokan smýgur milli skinns og hörunds,er gott að geta hallað sér aftur og sagt;"þú skalt ekki halda að ég sé búinn að gleyma góða veðrinu sem var hér í gær"- - og vona að aukið gagnsæi hleypi sólargeislunum alla leið til mín - því þá verður ekki að sökum að spyrja.
06.07.2011
þegar sólin nennir ekki alveg að láta sig hverfa - og birtan á fjöllunum er næstum af öðrum heimi,... er sóun að óhreinka sængurlínið - þetta eru hvort sem er örfáar nætur sem við gætum misst úr- - - vitandi líka að það gefst mjög langur tími til svefns - - þó síðar verði.
25.06.2011
Að leiðrétta - - það sem er aflaga..fjöldamargt hefðum við átt að gera öðruvísi bæði fyrir og eftir Hrun – en sumu má enn víkja til betri vegar sem annað hvort misfórst eða var látið ógert.
24.06.2011
Merkilegt hvað maríuerlan er glaðleg þar sem hún vappar um,veifar stélinu og syngur hvellum rómi,- - - og bara ég og hún til að njóta