15.11.2006
Býsna spaugilegt að heyra Halldór Blöndal láta eins og hann hafi alla tíð verið að berjast við að lengja flugbrautina á Akureyri. Líka spaugilegt að heyra KLM taka málið upp núna.
15.11.2006
Gott að það fór svona illa – fyrst það fór ekki vel.Sennilega er það rétt sem einn vinnufélagi minn gaukaði að mér eftir prófkjörið; eitthvað á þessa leið; “ - að fyrst þú náðir ekki árangri þá var best fyrir framhaldið að oddvitar Samfylkingarfélagsins og bæjarfulltrúarnir hér á Akureyri snerustu opinskátt gegn þér - sem frambjóðanda og málsvara fyrir mikilvæga hagsmuni Akureyrar og nærsvæðisins – og kjördæmisins í heild.
15.11.2006
Að loknum flestum prófkjörum Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins Hér á síðunni hef ég birt nokkurs konar uppgjör - við prófkjörið og þá reynslu sem ég hafði af því.
11.11.2006
Var að hlusta á fréttirnar á RÚV. Skelfing á heyra að þátttaka í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík var ekki nema 4800 manns eða uþb. Atkvæðaskiptingin er líka athygliverð!.
06.11.2006
Er að reyna að fóta mig - í hlutverki fyrrverandi frambjóðanda.Til þess fæ ég margvíslega leiðbeiningu meðal annars frá góðskáldum.Pétur Pétursson gefur álit.
04.11.2006
Til hamingju Kristján MöllerÞú færð skýrt umboð frá skráðum kjósendum í prófkjörinu. Ég var hins vegar "rotaður í fyrstu lotu".......... Og allt óbreytt hjá Samfylkingunni í NA-kjördæmi.
03.11.2006
Talning fer fram á morgun; laugardag 4.nóvemberGert er ráð fyrir að úrslit liggi fyrir í kvöldfréttum RÚV-sjónvarps um kl.19:00.
02.11.2006
Komið hefur upp þræta um það hver fær hvaða gögn eða kjörskrá...hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík. Þar fengu frambjóðendur í prófkjöri rafræna útgáfu - en ekki allir sömu útgáfu eins og haldið hefur verið fram.