. . eftir stress og endurteknar tafir fyrir Helgu mína að komast frá Spáni - með því að keyra landið þvert -
. . loksins gefin flugheimild seint og um síðir í gærkvöldi - og reiknað með lendingu í keflavík kl 4:16 - þá svaf ég lítið . en glaðvaknaði við að síminn hringdi og þá var frú Helga á Akureyrarflugvelli kl rúmlega 4 í nótt - þar sem Keflavík var að lokast . . .
Raunum mínum virðist því lokið - - og sólin skein snemma í morgunfrostinu: - sannarlega er komið vor í sál minni
Dýrð við Pollinn - dagur skín,
datt í lukkupottinn,
Helga er komin heim til mín
og hugsar sjálf um þvottinn.