Ríkisstjórnin "sökkar" - og valkostirnir láta á sér standa
-- -- Arni fjármála-dýralæknir þrætir við fjölþjóðastofnanir um útreikninga á kjörum og fátækt. Hann gerir hins vegar enga tilraun til að fækka þeim börnum og öldruðum sem búa við fátækt - -- -- og ráðherra fátæktarmála (fjölskyldu - öryrkja og aldraðra) Magnús Stefánsson segir að "fátækt sé afstæð"
---- Er nú hægt að ganga öllu lengra í því að gera lítið úr því fólki sem á í hlut. Núna rétt fyrir jólin þegar skortur er sennilega sárari en á öðrum tímum ársins - þó hluttekning og hjálparhönd sé etv. á sama tíma nær en oft.-- Skamm -Magnús!
Stjórnarandstaðan þarf að sýna spilin sín - og skilgreina trúverðugan valkost
það er brýnt - og einmitt núna; Kannski felst eftirsóttur sköpunarkraftur í þessu ástandi? Sköpunarkraftur sem hefur skort til að sparka stjórnaradnstöðunni til að stilla upp skýrum og einföldum lausnum.
Fer ekki annars allt í uppnám;
- ef aldraðir bjóða fram og riðla öllum pólitískum línum?
- barnafjölskyldurnar kjósa ekki - vegna þess að þær hafa ekki efni á því - eða sjá ekki tilganginn?
- ef kosningaþátttakan fer niður í 60-70% - eða jafnvel neðar?
Engin elsku mamma........
Steingrímur J er í svo bullandi fýlu út í Margréti Frímannsdóttur - og Jón Baldvin að hann sendir sérstaka sendisveina til blaðaskrifa í helgarblöðin - og þetta er nú fólk sem er horfið frá daglegu þrasi stjórnmálanna eða er á förum. Halda menn að SJS sé líklegur til að verða samvinnufús - eða sæmilega samstígur þegar illskan grasserar með þessum hætti?
Við megum heldur ekki gleyma því að það var Vinstri Grænt - sem drap Reykjavíkurlistann!
Svo er þetta nú áfram með innflytjendur og Frjálslynda? Þar er nú ekki komin á sú kyrrð og friður sem til þarf. Verða þeir stjórntækir félagarnir? - og hvað ef þeim tekst að sparka einu spræku stelpunni út af vellinum?
Hverjir eiga þá að vinna saman? Er fólkið í framlínunni vandamálið? Það skyldi þó aldrei vera? Er til svar við því?
Er kannski algerlega nauðsynlegt að kalla fólk utan þingflokkanna - til starfa í ríkisstjórn - miðju og til vinstri?